veiðigjöld.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fína yfirferð yfir þetta mál en ég hef svolitlar áhyggjur af því að ekki skapist um það sú rökræða sem er svo augljóslega nauðsynleg í þingsal vegna þess hvernig nálgun stjórnarliða hefur verið á umræðu um þetta mál. Þar er ég að vísa til þess að ekki hvað síst hæstv. forsætisráðherra setur það iðulega í þann búning að það snúist um að ná tekjum til almennings af einhverjum örfáum sægreifum, eins og hæstv. forsætisráðherra kallar þá svo oft, gefur þannig í skyn að allur ávinningur af nýtingu sjávarauðlindarinnar lendi hjá litlum hópi manna og að þetta frumvarp sem við ræðum hér snúist um að arðurinn skili sér til þjóðarinnar í heild.
Svo sjáum við, kannski sérstaklega í dag, að sjómenn og fólk sem starfar við fiskvinnslu hefur ályktað um það að með þessu frumvarpi sé vegið beint að hagsmunum þess. Við höfum áður heyrt frá fulltrúum fjölmargra sveitarfélaga vítt og breitt um landið um áhrifin sem þetta hefur á byggðirnar. Við höfum líka lesið fjölmörg álit þar sem hagfræðingar og aðrir sérfræðingar benda á að þessar breytingar séu til þess fallnar að skaða hagsmuni alls almennings í landinu vegna þess að það sem fæst fyrir auðlindina verður einfaldlega minna virði en nú er.
Getur hv. þingmaður tekið undir það með mér að ef við ætlum að ráðast í skynsamlegar breytingar á sjávarútvegskerfinu, á fiskveiðistjórnarkerfinu, verðum við að fara að ræða raunveruleg áhrif en sleppa frösum eins og umræðan hefur byggst á að allt of miklu leyti, (Forseti hringir.) og sérstaklega auðvitað fulltrúar ríkisstjórnarinnar sem leggja þessi mál fram?