140. löggjafarþing — 121. fundur,  14. júní 2012.

húsnæðismál.

734. mál
[12:26]
Horfa

Birkir Jón Jónsson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég veit að hv. þingmaður getur ekki komið aftur í andsvar og ég ætla að vera sanngjarn en ég er viss um að hv. þingmaður er mér sammála um að við ættum ekki að hverfa aftur til þeirrar stefnu sem var við lýði undir forustu hæstv. þáverandi ráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, um rekstur Húsnæðisstofnunar sem olli því að milljarðatugir lentu á skattgreiðendum. Vextir voru niðurgreiddir og stofnunin var hugsuð með allt of félagslega miðuðum hætti að mínu viti. (PHB: Fyrir alla.) Já, fyrir alla. Ég er viss um að við hv. þingmaður erum sammála um það og þá er að finna lausn gagnvart ESA um hvernig við getum stuðlað að því, þá tala ég fyrir hönd okkar framsóknarmanna, að við höfum áfram öflugan Íbúðalánasjóð í landinu vegna þess að aðgengi fólks að lánsfjármagni er mjög misskipt. Við hljótum að vilja skapa öllum sömu tækifæri til að kaupa sér húsnæði yfir höfuðið.