innheimtulög.
Herra forseti. Hv. þingmaður sagði: Maður tekur ekki rétt sinn sjálfur. Sá sem ekki borgar af láni þó hann eigi að gera það, sá sem ekki vill undirrita viljayfirlýsingu um að taka megi eignina af honum, hann er að taka rétt sinn sjálfur og þessi lög ýta undir það. (Gripið fram í.) Að þessu leyti, jú vissulega, þeir sem eru óprúttnir hinum megin, þetta er á báða bóga. Eins og ég gat um áðan hafa margir kröfuhafar gengið mjög langt og hart fram í því að taka bifreiðar og það finnst mér óhæfa.
Á hinn bóginn eru líka til einstaklingar sem borga ekki af lánunum sínum og ætla aldrei að gera það. Þá standa menn í því og þessi lög segja að það er ekki hægt að taka bifreiðina, ekki einu sinni gefinn frestur. Nefndin gaf ekki einu sinni frest, að ef ekki næst í viðkomandi með skynsamlegum hætti innan þriggja mánaða eða eitthvað slíkt, þá skuli menn geta tekið bifreiðina. Nei, það er ekki hægt því að hann þarf að samþykkja það og fara þarf í aðför. Ég held að menn þurfi að skoða þetta pínulítið betur.