skýrsla umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2010.
Hæstv. forseti. Það eru tvö atriði sem hv. þm. Vigdís Hauksdóttir nefnir sem ég ætlaði að blanda mér í, ef svo má segja, í þessum stuttu andsvörum. Annars vegar er það hárrétt sem hv. þm. Vigdís Hauksdóttir segir að mikil þörf er á því að bæta lagasetningarferlið í þinginu og í aðdraganda þess að mál koma til þingsins. Hún hefur lagt fram frumvarp um lagaskrifstofu Alþingis. Ég hef í ræðum mínum um það mál lýst yfir stuðningi við markmið þess þó að ég kunni kannski að hafa aðrar hugmyndir um útfærsluna en hv. þingmaður. Það er rétt sem hún nefnir að tillögur í þessa átt eru mjög í samræmi við þær ábendingar sem komu frá umboðsmanni Alþingis í skýrslunni frá 2009 og full þörf fyrir þingið að huga að þessu.
Menn velta oft fyrir sér kostnaði í sambandi við opinbera starfsemi af þessu tagi, en ég held hins vegar að kostnaður sem verður til vegna þess að þingið er að sinna sinni frumskyldu, sem er lagasetningin, á sómasamlegan hátt sé eitthvað sem við getum leyft okkur þótt hart sé í ári og þröngt í búi.
Síðan má auðvitað benda á það að vönduð lagasetning getur leitt til minni kostnaðar hjá hinu opinbera og úti í þjóðfélaginu í mörgum tilvikum. Þetta er því ekki allt í mínus.
Hitt atriðið sem ég ætlaði að nefna og taka undir með hv. þingmanni er að það er eiginlega óskiljanlegt af hverju þessi stabbi af óræddum skýrslum umboðsmanns Alþingis hefur safnast hér upp. Umboðsmaður hefur skilað sínum skýrslum. Nefndir sem um þær hafa fjallað hafa skilað sínum (Forseti hringir.) álitum en tími ekki verið gefinn til umræðu í störfum þingsins. Mér eins og hv. þingmanni finnst það verulegt umhugsunarefni (Forseti hringir.) og eitthvað sem við verðum að bæta úr.