stjórnarskipunarlög.
Virðulegi forseti. Það er rétt að skýringartextinn þarf að vera mjög skýr en skilgreiningarnar þurfa líka að liggja fyrir og að nokkuð breið samstaða sé um þann sameiginlega skilning.
Ég nefndi reyndar í fljótheitum auðlindaákvæðið þar sem nauðsynlegt er að skilgreina þær auðlindir sem eiga að fara í þjóðareign. Hvað eru auðlindir? Ég benti meðal annars á minnisblað Aagotar Óskarsdóttur þess efnis að það sé ekki alltaf augljóst, uppspretta vatns, vatn og annað í þeim dúr sem hún nefndi. Við höfum til dæmis farið með þjóðgarðana alla í hæsta verndarflokk því að við fórum fyrst með Þingvelli þangað, helgistað þjóðarinnar.
Það eru svona skilgreiningaratriði sem við verðum að vera búin að ná nokkuð sameiginlegum skilningi á áður en við setjum þau inn sem grein og þá verður skýringartextinn að undirbyggja það sem þar stendur.
Mér finnst margt vera óljóst (Forseti hringir.) í þessum þriðju kynslóðar réttindum, sérstaklega þar, og ég tel að málið þurfi meiri tíma og meiri yfirlegu.