141. löggjafarþing — 48. fundur,  6. des. 2012.

fjárlög 2013.

1. mál
[10:53]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra Steingrímur J. Sigfússon sagði að ekki hefði verið rætt um stóru myndina.

Hann sagði: Hallinn á ríkissjóði er horfinn.

Hallinn á ríkissjóði er horfinn, sagði hæstv. ráðherra, en hið rétta er að hallinn á ríkissjóði er horfinn undir teppið. Það er stóra myndin.