fjárlög 2013.
Frú forseti. Það er dálítið undarlegt að vera að ræða um tekjuöflun sem er enn óafgreidd og verður rædd á eftir. Í hv. nefnd samþykkti stjórnarandstaðan í gærmorgun af velvild og liðlegheitum að taka málið til afgreiðslu þó að ekki væri búið að ræða það á Alþingi. Fyrir liðlegheit stjórnarandstöðunnar, þ.e. mín, var þetta rætt og þar komu fram mjög alvarlegar athugasemdir við það að bæta við nýju skattþrepi. Það var sagt að þetta mundi auka enn frekar á skattsvik og skattsvindl og auka möguleika manna til að komast fram hjá skattinum. Það var varað eindregið við þessu. Þar fyrir utan má ræða þau skaðlegu áhrif sem þetta hefur á ferðaþjónustuna eins og þegar hefur komið fram í færri bókunum og því að menn eru hættir við fjárfestingar og annað slíkt. Þetta er mjög skaðlegur skattur og ég mun greiða atkvæði gegn þessu.