fjárlög 2013.
Frú forseti. Íslenskur sjávarútvegur hefur 65 milljarða til fjárfestinga. (Gripið fram í: Af hverju er þá verið að segja upp fólki?) Þetta er undirstöðuatvinnugrein sem vissulega þarf að standa undir nafni sem slík í samfélagi okkar. Það þýðir að hún á að vera þátttakandi í samfélaginu, því samfélagi sem skóp hana.
Núna er í fyrsta skipti verið að taka raunverulegan arð af umframgróða í sjávarútvegi, (Gripið fram í.) 12 milljarða, til mikilvægra samfélagslegra verkefna sem sjálfstæðismenn voga sér að kalla „einhver gæluverkefni“ eftir það hrun sem átti sér stað. (Gripið fram í.) Um er að ræða uppbyggingu í nýsköpun og tækniþróun og mikilvæg samfélagsleg verkefni eins og samgönguframkvæmdir. Mjög hefur verið kallað eftir því á síðustu árum að ríkið (Forseti hringir.) hvetti til opinberra fjárfestinga og framkvæmda til að koma innspýtingu í atvinnu- og framkvæmdalíf hér.