141. löggjafarþing — 48. fundur,  6. des. 2012.

fjárlög 2013.

1. mál
[12:01]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Mig langar við atkvæðagreiðslu þessa liðar að benda þingheimi á það sem telst frekar merkilegt í afgreiðslu fjárlagafrumvarps til 2. umr., það að hér liggja ekki inni tillögur forseta Alþingis til fjárlaganefndar um afgreiðslubeiðni þess. Ég held að það sé einsdæmi í umræðu um fjárlögin að hér séu teknar inn tillögur frá framkvæmdarvaldinu og frá meiri hluta fjárlaganefndar en tillögur frá forseta Alþingis sem samþykktar voru samhljóða í forsætisnefnd þingsins eru geymdar á milli 2. og 3. umr.

Ég lýsi furðu minni á þessu, virðulegur forseti. Ég hef kallað þetta þjónkun við framkvæmdarvaldið og virðingarleysi við Alþingi. (VigH: Rétt.)