141. löggjafarþing — 48. fundur,  6. des. 2012.

fjárlög 2013.

1. mál
[13:40]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Hr):

Forseti. Það er ástæða til að fagna því sem vel er gert. Það er vissulega mjög margt gagnrýnivert í fjárlögum eins og alltaf því að helst mundi maður vilja hafa þau sniðin að því sem manni finnst sjálfum vera forgangsatriði. Þetta finnst mér vera klárt forgangsatriði, ég styð þetta þess vegna. Ég vil jafnframt skora á hv. fjárlaganefnd að athuga hvort ekki sé hægt að finna aðeins meiri peninga til að aðstoða Landspítalann sem er í mjög mikilli neyð eins og komið hefur fram undanfarið.

Jafnframt vil ég nota tækifærið, en ég hef ekki farið upp í pontu í dag til að greiða fyrir störfum þingsins, og segja að ég fagna mjög áherslunum sem ríkisstjórnin hefur sett á skapandi greinar og græna hagkerfið.