fjárlög 2013.
Forseti. Okkur hefur orðið tíðrætt um vöxt í ferðaþjónustu og nauðsyn þess að efla hana og styrkja. Önnur hlið á þeim peningi er þörfin fyrir aukna vernd á íslenskri náttúru sem helst algerlega í hendur við vaxandi ferðamannafjölda á landinu.
Ég vil fagna sérstaklega þeim hluta í fjárfestingaráætluninni, sem við ræðum m.a. í þessum lið upp á 500 millj. kr. og þeim öðrum liðum sem hér er að finna, um uppbyggingu á fjölsóttum ferðamannastöðum og innviðum á viðkvæmum friðlýstum svæðum og í þjóðgörðum. Hér er samtals um að ræða 1.040 millj. kr. sem skiptast á milli ferðamannastaða, einkum Vatnajökulsþjóðgarðs og það eru Skaftárhreppur og þekkingarsetrið á Klaustri sem þar fá stærsta framlagið, 347 millj. kr. Það er fyrsta skrefið af þremur og veitir ekki af í þeim byggðum að setja myndarlega í. Ég fagna þessu sérstaklega. Það er mikil stefnubreyting í fjárlögum ríkisins (Forseti hringir.) að huga að þessum verkefnum.