búnaðarlög og framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum.
Frú forseti. Varðandi það sem hv. þingmaður spyr hér að síðast held ég að það hafi verið lögfræðileg sjónarmið sem réðu því að það væri eðlilegt, þegar löggerningur af þessu tagi til þetta langs tíma væri gerður, væru settir inn þeir fyrirvarar sem hugsanlega gæti reynt á. Það er til dæmis að sjálfsögðu alltaf fyrirvari um samþykki Alþingis við fjárveitingum þannig að hægt sé að fullnusta samninginn að því leyti.
Varðandi þennan þjóðréttarlega fyrirvara held ég að við séum nú sammála um það, ég og hv. þingmaður, að ekki séu miklar líkur á því að á hann reyni. Ég tel því að ekki þurfi að hafa stórar áhyggjur af því og minnist þess ekki að þetta hafi valdið neinum ágreiningi milli samningsaðila.
Varðandi uppgjör bóta sem nokkrir hafa spurt hér að held ég að búið sé að gera allt sem hægt er til að hraða því og vinna úr því máli. Ég vek athygli manna á því að þegar er búið að tryggja Bjargráðasjóði nægjanlegar fjárheimildir í gegnum fjáraukalög þannig að fjárheimildirnar eru til staðar. Ég er búinn að samþykkja verklagsreglur Bjargráðasjóðs, þær eru mjög hliðstæðar því sem notað var í gostjónunum. Það er alveg ljóst að við erum að tala hér um beint tjón sem fer um Bjargráðasjóð, talsvert á annað hundrað milljónir kr. Þar við bætist að sjálfsögðu að í gegnum búvörusamningana verða bændum líka tryggðar tekjur og þetta tvennt vegur saman. Í sjálfu sér hefði uppgjörið í gegnum Bjargráðasjóð orðið dýrara ef ekki kæmu til óskertar beingreiðslur því að þá hefðu afurðatjónabætur orðið að koma á móti.
Ég tel að Bjargráðasjóður, stjórn Bjargráðasjóðs og starfsmenn, hafi unnið mjög vasklega að þessu máli, það er búið að safna gögnum um tjónið, búið að útbúa og senda út eyðublöð til að sækja um. Ef allt fer að óskum, og ekki síst ef Alþingi hraðar afgreiðslu þessa frumvarps sem æskilegt væri, gætu greiðslur borist bændum núna fyrir áramót, sem er að sjálfsögðu mikilvægt vegna þess að bændur hafa orðið fyrir talsverðum fjármagnskostnaði ef svo má að orði komast, þ.e. það innlegg sem menn hefðu fengið greitt fljótlega eftir sláturtíð kemur þá núna í formi bóta frá Bjargráðasjóði vegna þess fjár sem fórst og verður að sjálfsögðu ekki lagt inn. Þær greiðslur berast þá einhverjum tveimur mánuðum seinna kannski en ella hefði orðið ef menn hefðu fengið innleggið greitt á sláturtíð. Þess vegna er mjög mikilvægt að reyna að hraða þessu eins og kostur er og það hefur allt verið gert sem hægt er í þeim efnum.
Varðandi stöðu manna eftir því hvort þeir eru inni í gæðastýringarkerfinu eða ekki er þessi breyting algjörlega hlutlaus gagnvart því, þ.e. að það halda allir þeirri stöðu sem þeir hafa og óskertum beingreiðslum óháð því hvort þeir eru í gæðastýringarkerfinu eða ekki. Það er alveg á hreinu að engum verður mismunað á grundvelli þess.
Loks vil ég nefna, af því að menn nefndu hér líka búnaðarlagasamninginn, að ég tel ánægjulegt að þar sé þó verið að sækja fram á vissum sviðum, bæði í sambandi við að byggja Framleiðnisjóð landbúnaðarins upp á nýjan leik og sömuleiðis með því að auka jarðræktarstyrki til kornræktar og þar er sérstaklega horft til svínaræktarinnar, að hún geti orðið meira sjálfri sér næg um fóðurframleiðslu.
Ég tel að í það heila tekið hafi tekist vel að verja grundvöll landbúnaðarframleiðslunnar gegnum þessar miklu þrengingar og samningarnir bæði 2009 og aftur núna og gott samstarf um þá hafi verið mjög farsælt fyrir báða aðila, ríkið og bændur. Með þessu hafa líka kjör bænda verið varin. Þeir lögðu að sjálfsögðu sitt af mörkum og heldur betur því að búvörusamningarnir tóku á sig mikla skerðingu í lok árs 2008 og það var um það sem var samið í raun og veru 2009 en þar með var sett gólf í þá skerðingu og að hluta til hefur hún unnist til baka og gerir á næstu árum, enda er svo komið að talsverð uppbygging er hafin á nýjan leik í landbúnaðinum og nokkuð orðið um fjárfestingar og mun meiri bjartsýni ríkjandi nú en kannski eðlilega var á erfiðasta tímanum.
Ég vek líka athygli manna á því, þó að það fari ekki endilega hátt, að landbúnaðurinn hefur sótt mjög í sig veðrið þessi síðustu ár sem útflutningsgrein og er sennilega að skríða á annan tug milljarða í beinum útflutningstekjum ef saman er lagður útflutningur á kjöti, mjólkurvörum, loðskinnum, fiskeldisvörum, hestum og öðru slíku, ég tala nú ekki um ef ferðaþjónusta bænda er tekin með, að þá er landbúnaðurinn orðinn miklu stærri gjaldeyrisaflandi í hagkerfinu en kannski margir hafa áttað sig á, sem ætti að sýna fram á gildi þess og gagnsemi, fyrir utan allt annað, að staðinn hefur verið vörður um hann.
Ég þakka þær umræður sem hér hafa orðið.