141. löggjafarþing — 55. fundur,  18. des. 2012.

störf þingsins.

[10:50]
Horfa

Ólína Þorvarðardóttir (Sf):

Frú forseti. Nú berast fréttir af því að samkomulag hafi náðst um þinglok og það breiðist velþóknunarsvipur yfir fréttamenn og forustumenn þingsins. Ég vil þó varpa hér fram spurningu, frú forseti: Hvað eru samningar um þinglok? Þetta eru samningar í bakherbergjum sem ganga á skjön við þingsköp og þær eðlilegu leikreglur sem þingið sjálft hefur sett sér, (Gripið fram í.) samningar sem eru knúðir fram með ofbeldi málþófs og alls kyns pólitískum tiktúrum sem eiga ekkert skylt við lýðræðislegar aðferðir.

Samningar um þinglok eru pólitísk spilling, (VigH: Já?) (Gripið fram í: Heyr, heyr.) grímulaust form pólitískrar spillingar og í fullkominni andstöðu við þau breyttu og bættu vinnubrögð sem við ætluðum að tileinka okkur hér í upphafi þessa kjörtímabils, a.m.k. við þessir 27 nýju þingmenn sem komum hér inn en höfum síðan beygt okkur undir þessi vinnubrögð og sumir hverjir tekið þátt í þeim.

Við ætluðum að breyta og bæta. Við ætluðum að byggja upp nýtt Ísland og þetta er Alþingi í dag. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)