loftslagsmál.
Virðulegur forseti. Hinni síðari spurningu er auðsvarað. Kína og Bandaríkin eru ekki aðilar að Kyoto-bókuninni og loftslagssamningum. Það er mál sem þarf að leysa. Doha-fundurinn fór illa þótt tækist að framlengja Kyoto-samninginn um átta ár. Í honum eru sumsé Evrópusambandið, Noregur, Ísland, Ástralía og ég held ekki mikið fleiri ríki en út úr honum hafa dottið ríki sem áður voru inni. Það er hörmulegt og hversu alvarleg sem okkar álitamál eru um stjórnarskrána þá er það mál sem hér býr undir alvarlegra. Ég held satt að segja að það geti varðað líf mannsins á jörðinni og þó við kunnum að bjargast sem hér sitjum er ég hræddur um að börn okkar, eða að minnsta kosti barnabörn, kunni að glíma við erfiðari vanda en við gerum okkur í raun og veru grein fyrir eða getum skilið.
Um hina fyrri spurningu er ég alveg sammála bæði hv. þm. Birgittu Jónsdóttur og sameiginlegum átrúnaðargoðum okkar eins og Paul McCartney um það að kjötneysla í sjálfu sér er einn valdurinn að þessu og ég tel að við eigum að draga úr henni eins og hægt er þótt við hættum náttúrlega ekki að borða íslenska lambakjötið. Ég hef til dæmis stundað það hér í matsalnum að fara frekar á salatbarinn en að taka við kjötinu sem er framreitt. Það geri ég að sjálfsögðu í þágu þess að börn mín og barnabörn geti notið lífsins á jörðinni betur en ella mundi vera.