141. löggjafarþing — 98. fundur,  11. mars 2013.

framkvæmdaáætlun í barnavernd til 2014.

458. mál
[16:58]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Hæstv. forseti. Ég tel ekki tilefni til að ganga gegn því mati meiri hluta nefndarinnar að rétt sé að samþykkja þessa áætlun. Ég vil þó beina því til umhugsunar til hv. þingmanna: Hversu metnaðarfull er sú áætlun sem menn samþykkja án þess að hafa hugmynd um hvernig þeir ætla að framkvæma hana?