Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.
Herra forseti. ARD og ZDF í Þýskalandi eru með takmarkaðan tíma til auglýsinga og ég held að það hafi gefist vel. Mig minnir að þeir megi auglýsa frá kl. sex til átta, aðrir tímar detta út.
Ég er sammála því sem Blaðamannafélagið segir: Auglýsingapúllían er ekkert sér fyrir útvarp, sér fyrir sjónvarp og sér fyrir vefmiðla hjá fyrirtækjunum. Það er bara einn auglýsingapottur sem fyrirtækin hafa og síðan sjá þau hvar hag þeirra er best borgið að auglýsa.
Ég er sannfærð um að meðan Ríkisútvarpið er svona stórt á markaði eru minni möguleikar fyrir aðra frjálsa fjölmiðla til að koma inn á markaðinn. Það er bara þannig að Ríkisútvarpið er svo umsvifamikið og þetta skiptir máli ekki síst núna þegar við stöndum frammi fyrir gríðarlegri þróun á ljósvakamarkaði í dagskrárgerð og framleiðslu og ekki síst því hvar menn ná í efnið. Við eigum eftir að sjá fram á ýmsar uppsprettur, kannski einhverja miðla sem munu sjá sér hag í því að fara einfaldlega í innlenda framleiðslu á dagskrárefni. Þeir þurfa þá að geta auglýst sig þannig að þeir hafi eitthvert fjármagn til að fara í framleiðslu á íslensku efni. Ég held að það verði takmörkunum háð meðan Ríkisútvarpið er svona umsvifamikið.
Þess vegna segi ég: Til að réttlæta þessi umsvif og til að réttlæta að Ríkisútvarpið er að ég held eina ríkisstofnunin sem fær umframfjármagn til reksturs miðað við heilbrigðisstofnanir og allar aðrar stofnanir í landinu — Ríkisútvarpið átti upphaflega að fá hálfan milljarð til viðbótar og núna fær það 200 milljónir til viðbótar — verður það að vera gert á grundvelli þess að við gerum skýrari kröfur til Ríkisútvarpsins, skýrari kröfur til fréttaþjónustunnar og ekki síst skýrari kröfur um hlutverk þess. Það má gera til dæmis með kröfu um aukin kaup á innlendu efni, efni frá (Forseti hringir.) sjálfstæðum framleiðendum. Við sjálfstæðismenn höfum lagt fram þessa kröfu vegna þess að við viljum sjá forgangsröðunina öðruvísi en hún er í dag.