Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.
Virðulegi forseti. Ég þarf ekkert að endurtaka neitt úr umræðunum um hvað hér er á ferðinni, hverjar ástæður eru fyrir því að til þessa máls var efnt. (Gripið fram í: Við þekkjum …) Þær eru þekktar. Svo er það hitt hversu mikið menn taka mark á þeim, það er annað. Þar verður hver að þjóna sinni lund.
Vegna þess sem rætt var í dag og varðandi það að búið er að vísa málinu aftur til nefndar þá sagði ég það hér og ítreka og endurtek að ég tel að það færi ágætlega á því að nefndin skoðaði það hvort ekki væri hægt að bæta því við í lögin að starfsmenn Ríkisútvarpsins ættu áheyrnarfulltrúa í stjórninni. Það var nefnt hér að það gæti verið í átt til sátta í málinu. Ég geri mér grein fyrir því að það munu ekki nást fullar sættir í þetta mál, en það gæti alla vega verið skref til þess að fleiri gætu við unað, virðulegi forseti.