aðgerðir vegna skuldavanda heimila á Íslandi.
Frú forseti. Þetta er merkisdagur fyrir nýja hægri stjórn á Íslandi því að hér er síðari umræða um þingsályktunartillögu um stóra kosningamálið. Það má undrun sæta að ekki sé meiri gleði meðal stjórnarþingmanna. Sjálfstæðismenn virðast ekki líta á þetta sem sína tillögu, þeir sjást ekki í salnum í dag.
Hæstv. forsætisráðherra bregst núna við gagnrýni okkar úr Samfylkingunni með því að segja að þetta sé gremja okkar yfir úrslitum kosninganna. Þessi setning veitir hæstv. ráðherra hugarró og þá dúsu ætla ég ekki að hrifsa af honum.
Ég kom hér til að spyrja hann út í þá óvissu sem ríkisstjórn hans hefur skapað með óljósum áformum, hvort hæstv. ráðherra telji ábyrgt af lánastofnunum að veita verðtryggð lán núna og næstu mánuði þegar fyrir liggur að ríkisstjórnin ætlar að afnema verðtryggingu og breyta verðtryggðum lánum í óverðtryggð eftir því sem kostur gefst.
Frú forseti. Spurning mín er sem sagt sú: Telur hæstv. forsætisráðherra slíkt ábyrgt af hálfu lánastofnana?