142. löggjafarþing — 28. fundur,  16. sept. 2013.

umfjöllun nefnda um skýrslu um Íbúðalánasjóð.

[15:07]
Horfa

Karl Garðarsson (F):

Virðulegi forseti. Vegna ummæla hv. þm. Árna Þórs Sigurðssonar hér áðan vil ég taka það fram að á fundi fjárlaganefndar í morgun var ekki verið að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar heldur komu þangað forstjóri og fjármálastjóri Íbúðalánasjóðs í heimsókn til að ræða um stöðu og horfur hjá þeirri stofnun. Það var alls ekki verið að fjalla um þessa skýrslu sem þingmaðurinn var að nefna.