142. löggjafarþing — 28. fundur,  16. sept. 2013.

umfjöllun nefnda um skýrslu um Íbúðalánasjóð.

[15:09]
Horfa

Karl Garðarsson (F):

Virðulegi forseti. Vegna ummæla hv. þm. Helga Hjörvars vil ég bara taka það fram að þessi skýrsla er á borðinu hjá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Hún er í umfjöllun þar. Þar er búið að skipuleggja ákveðna fundi vegna þessarar skýrslu þar sem farið verður vel yfir hana með gestum. Það mun taka nokkurn tíma og ég held að það sé mjög skynsamlegt ef menn ljúka þeirri umfjöllun áður en farið verður með þetta mál lengra.