143. löggjafarþing — 15. fundur,  4. nóv. 2013.

framtíð rannsóknarsjóða og nýsköpunar.

[16:04]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Svandísi Svavarsdóttur fyrir að hefja þessa umræðu og að sama skapi þakka ég hæstv. ráðherra fyrir að deila hér með okkur framtíðarsýn sinni sem er sú, eins og ég skildi hæstv. ráðherra, að efla rannsóknarsjóði, að sjá þá stækka og eflast og verða það tæki sem standi vörð um grunnrannsóknir á Íslandi og auka með því samkeppnishæfi landsins. Um þetta hljótum við öll að vera sammála þó að umræðan hér sýni okkur kannski, ef einhver bætist í hana á síðari stigum, að menn séu ósammála um alla þessa hluti. Ég sé umræðuna ekki þannig. Ég tel að við séum öll sammála um að aukin menntun og öflugir rannsóknarsjóðir skili okkur auknum hagvexti.

Við hljótum líka að geta lesið það bæði út úr núverandi fjárlagafrumvarpi og eins þeim ummælum hæstv. ráðherra hér að ef við skoðum áætlun Rannsóknasjóðs fyrir 2014 og berum hana saman við 2012 er sjóðurinn að stækka. Menn hafa talað hér mikið um að áætlun fyrri ríkisstjórnar hafi verið að auka enn frekar í þessa sjóði og það er rétt. Hins vegar er algjörlega ljóst að fjárfestingaráætlun fyrri ríkisstjórnar var ekki fjármögnuð. Menn þurfa ekki annað en að fletta upp hagtölum og þeim tölum sem birtast okkur um fjárlögin til að sjá það. Ég man ekki betur en að þáverandi fjármálaráðherra, Oddný G. Harðardóttir, hafi jafnframt lýst því yfir að síðasta fjárlagafrumvarp sem fyrri ríkisstjórn lagði fram væri kosningafjárlög. Það er algjörlega það sem kom á daginn. Stefndi ekki í 30 milljarða halla fyrir þetta ár á grundvelli fjárlaga þeirrar ríkisstjórnar? Er þá ekki alveg ljóst að menn þurfa aðeins að skoða hvað það var sem menn í fyrri ríkisstjórn lofuðu og hvað (Forseti hringir.) lá þar að baki?