143. löggjafarþing — 32. fundur,  4. des. 2013.

kvótasetning í landbúnaði.

[15:29]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég get tekið undir það að við núverandi aðstæður er nokkuð augljóst að engin rök eru fyrir því að við þurfum á kvótastýringu að halda sem hamlar framleiðslu. Við þurfum að horfa til lengri tíma, átta okkur á því í hvaða kerfi við viljum halda áfram með landbúnaðinn okkar. Það hyggjumst við gera með því að setjast yfir það núna eftir áramótin; setja á laggirnar slíka starfshópa og hefja undirbúning að endurskoðun búvörusamninga. Þeir renna þó ekki út fyrr en 2016 og 2017, ef ég man rétt, en má vel hugsa sér að þeir verði teknir upp fyrr ef menn verða ásáttir um nýtt fyrirkomulag sem hentar betur nútímanum og þeim kröfum sem við hljótum að gera til innlendrar matvælaframleiðslu.