143. löggjafarþing — 36. fundur,  13. des. 2013.

fjárlög 2014.

1. mál
[17:32]
Horfa

Karl Garðarsson (F) (andsvar):

Ég þakka hv. þm. Árna Þór Sigurðssyni fyrir þessar spurningar. Lagðar voru fyrir fjárlaganefnd upplýsingar um áhrif barnabóta, hvernig það færi á milli þeirra tekjuflokka sem um væri að ræða. Sjálfur hef ég reyndar verið fjarverandi þessa viku þó að ég sé í fjárlaganefnd, þannig að ég sá ekki allar upplýsingarnar sem lagðar voru fyrir nefndina um þetta tiltekna mál.

Ég hef verið þeirrar skoðunar varðandi barnabætur að það mál hefði jafnvel átt að skoða betur. Þá er ég ekki að tala um að barnabætur verði skertar hjá þeim sem eru með lægstu tekjur, alls ekki, það má alls ekki gera. Það hefði hins vegar mátt skoða betur möguleika á barnabótum og hvort rétt sé að skerða þær hjá þeim sem eru í hæstu lögunum tekjulega séð, alls ekki hjá þeim sem eru með lægstu tekjurnar, það er mjög mikilvægt.

Varðandi þróunarmálin þá er mér alveg kunnugt um þessar skýrslur en þær segja nú, held ég, ekki nema hálfa söguna. Ég segi því enn og aftur: Það þarf að skoða mun betur hvort þeir fjármunir sem fara í þetta fari á rétta staði.