143. löggjafarþing — 52. fundur,  20. jan. 2014.

aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.

[15:16]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég veit ekki hvort við lesum sömu fjölmiðla en ég hvet hæstv. forsætisráðherra til að kíkja á fréttir Reuters, meðal annars frá því á föstudaginn var. Því er ekkert að leyna að þessu hefur verið haldið fram af og til frá því að ríkisstjórnin tók við, að hér séu hlutirnir ekki alveg eins og hæstv. forsætisráðherra vill vera láta. Og þetta eru svo sem ekki frumleg svör, þetta eru síendurtekin svör.

Ef við gefum okkur nú samt að þetta standist, þessar skýringar, hvað ætla þá hæstv. forsætisráðherra og hans ríkisstjórn að gera til að koma í veg fyrir að þessi áróður valdi okkur skaða? Hann er væntanlega að tala um að fréttirnar sem ég er að vitna í séu áróður, ég get lánað honum tengilinn að því ef hann telur að þetta sé eitthvert fleipur. Hefur ríkisstjórnin verið að gera eitthvað eða telur hæstv. forsætisráðherra ekki þörf á því?

Ég tel vera þörf á því, þetta sé ekki gott eins og þetta lítur út. Ég spyr: Er hæstv. forsætisráðherra sammála mér um að eitthvað þurfi að gera til að stoppa þennan áróður og hvað hyggst hann þá gera ef svo er?