störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í 6. gr. laga um vernd og nýtingu náttúrusvæða, sem stundum er kölluð rammaáætlun, segir að stjórnvöld skuli þegar Alþingi hefur samþykkt verndar- og orkunýtingaráætlun hefja undirbúning að friðlýsingu landsvæða sem ástæða þykir að friðlýsa gagnvart orkuvinnslu samkvæmt verndarflokki áætlunarinnar.
Um friðlýsingu vegna náttúruverndar fer samkvæmt lögum um náttúruvernd en um friðlýsingu vegna menningarsögulegra minja fer samkvæmt þjóðminjalögum. Bæði í lögum um rammaáætlun og í náttúruverndarlögum er áskilið að umhverfisyfirvöld eigi að friðlýsa svæði, annars vegar þau svæði sem eru í verndarflokki rammaáætlunar en hins vegar svæði sem eru á náttúruverndaráætlun samkvæmt náttúruverndarlögum.
Það er sem sagt lagaáskilnaður í hvorum tveggja lögunum að stjórnvöld sem fari með málaflokkinn tryggi að friðlýsingarferlið nái fram að ganga. Stofnunin sem hefur með þetta að gera heitir Umhverfisstofnun og hún hefur nú 0 kr. til að sinna þessum verkefnum samkvæmt fjárlögum yfirstandandi árs. Aðförinni er fylgt eftir af festu, friðlýsingarnar eru sveltar með öllu og þar með vakna spurningar um hver stefna stjórnvalda sé í því að fara að lögum hvað þá þætti varðar. Eitt er að vilja afturkalla lög og annað er að hunsa gildandi niðurstöður Alþingis. Hefur Alþingi ekki skoðun á því?
Virðulegi forseti. Það liggur fyrir að rammaáætlun er í uppnámi, verndarflokkurinn er ekki einu sinni í skjóli. Það er greinilegt að það eru uppi mikil álitamál í lögum, en hvað er í spilum ráðherrans og ríkisstjórnarinnar að auki? Jú, það er sú aðferð að setja ekki fjármuni á fjárlögum til friðlýsinga. Umhverfisstofnun er nú búin að segja upp starfsfólkinu sem átti að vinna verkið og forstjórinn sagði í fjölmiðlum að morgni 16. janúar að nú færi friðlýsingarvinnan í algjöran hægagang. Því stoppar vinnan sem er komin í gang og ekki verður unnið við ný svæði eins og þingsályktunin kveður á um. Viðkvæm náttúrusvæði komast ekki í það skjól sem rammaáætlunin átti að skila þeim með því að setja þau í verndarflokk. Það er áfram verið að útfæra árásir á náttúruna, nýjar útfærslur um hvert svæði. Hversu langt eru stjórnarflokkarnir tilbúnir að ganga í þeim efnum?