143. löggjafarþing — 69. fundur,  27. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið (skýrsla).

320. mál
[02:29]
Horfa

Óttarr Proppé (Bf) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Það hefur verið ánægjulegt að upplifa næturfund á Alþingi og heyra margar góðar og rökfastar ræður um mikilvægt málefni. Það er eitt af því sem eru forréttindi okkar sem erum kosin til þingstarfa, að fá að sjá í návígi góðar og rökfastar umræður og oft á tíðum stórskemmtilegar umræður, enda eru þingmenn hérna upp til hópa ræðusnillingar og meistarar miklir.

En það hlýtur að vera mikilvægt fyrir okkur sem viljum auðvitað að umræður hér séu á háu plani, að þær séu gagnlegar og skemmtilegar, að þingmenn hafi tilfinningu fyrir umfangi fundarins, hversu lengi hann sé, þannig að menn geti undirbúið sig vel og verið rökfastir og skemmtilegir, því að þannig (Forseti hringir.) búum við til nýja kafla í söguna og úrvalsrit á borð við Íslenska fyndni. Takk fyrir.