umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu dregin til baka.
Virðulegi forseti. Ég fagna því að sjá hérna hæstv. ráðherra koma inn í þingsal, ég þakka þeim kærlega fyrir að koma, sérstaklega hæstv. ráðherrum Sjálfstæðisflokksins. En ég verð að segja það að svona miðað við gang mála síðustu vikur að er það einn tiltekinn hæstv. ráðherra sem ég hefði sérstaklega gaman af því að heyra rökstuðning frá og það væri hæstv. forsætisráðherra. Ég verð eiginlega að segja það að núna þegar maður er orðinn opinber persóna þá hittir maður stundum annað frægt fólk [Hlátur í þingsal.] og maður er ekki viss hvort maður hafi hitt það áður, en hvert sinn sem ég sé hæstv. forsætisráðherra þá finnst mér ég sjá frægan mann, þá finnst mér ég sjá einhvern sem ég er ekki vanur að sjá á förnum vegi [Hlátur í þingsal.] en kannast við.
Ég vona því að hæstv. forsætisráðherra heiðri okkur með nærveru sinni hérna seinna í kvöld þannig að hann geti rökstutt hvers vegna hér sé um að ræða slit og hvers vegna ekki sé hægt að semja um þetta mál undir neinum kringumstæðum.