143. löggjafarþing — 91. fundur,  7. apr. 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[22:49]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég skal svara seinni spurningunni fyrr.

Mér sýnist að upplýsingatæknin sé notuð mjög mikið, reyndar alfarið, í þessu verkefni. Mér þykir það mjög gott. Raunar var ég með hérna í glósunum mínum að mér þyki mjög jákvætt að allt sé rafrænt og þetta sé gert eins rafrænt og mögulegt er. Það held ég að sé mjög mikilvægt og jákvætt þegar kemur að svona stóru og flóknu verkefni, sérstaklega vegna þess að hér er um ákveðið nýmæli að ræða.

6. gr. er greinilega vel úthugsuð og það er gott. Ég held að það megi bæta hana aðeins en býst ekki við því að það verði neinn ágreiningur þar um. Ég held ekki að það sé neitt í þeirri grein sem er svokallaður „showstopper“, ég biðst forláts, virðulegi forseti.

Hvað varðar þá forgangsröðun að nýta fjármagnið til að styðja þessa grunnefnahagsstoð, heimilin, heyri ég ekki betur en að hv. þingmaður sé að tala um þá kenningu sem ég lauk ræðu minni á að nefna. Kenningin er sú að með því að styrkja heimilin sé hægt að styrkja efnahaginn og þannig grafa okkur út úr skuldastöðu ríkisins.

Ég hef ekki mikla trú (Forseti hringir.) á þeirri kenningu. Ég vona að hún gangi upp. Ég mundi ekki veðja á þann hest sjálfur, en ég vona að hún gangi upp.