143. löggjafarþing — 99. fundur,  29. apr. 2014.

veiðigjöld.

568. mál
[18:27]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Jú, ég var sammála því. Það var út af aðstæðum í sjávarútvegi sem ég held að það hafi verið nauðsynlegt og ekki síst með tilliti til þess sem ég nefndi hér áðan, að staða margra lítilla og meðalstórra fyrirtækja var miklu alvarlegri. Ef ekki hefði verið settur inn þessi afsláttur, sem er auðvitað umdeildur, það má segja að á vissan hátt sé verið að verðlauna menn fyrir að vera skuldsettir, þá hefðu þessi fyrirtæki ekki staðið þetta af sér.

Við erum með þessi veiðigjöld í dag upp á 5 milljarða, það er alveg hárrétt, sem fasta tölu. Ég sagði áðan að ég væri ekki viss um að við værum komin með hinn endanlega sannleik í álagningu veiðigjalda. Þetta er m.a. það sem ég er að ræða um. Við erum hér enn eitt árið í ákveðinni bráðabirgðaútfærslu á málinu og þurfum að einbeita okkur að því í sumar og haust að koma því í eitthvert varanlegt form. Þá ítreka ég beiðni mína og áskorun til þingmanna um að við förum af ábyrgð og festu (Forseti hringir.) að karpa um önnur pólitísk ágreiningsefni (Forseti hringir.) í stað þess að vera alltaf með hártoganir um þessa (Forseti hringir.) mikilvægustu grein atvinnulífsins á Íslandi.