144. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[11:07]
Horfa

iðnaðar- og viðskiptaráðherra (Ragnheiður E. Árnadóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hvatninguna og vona sannarlega að frumvarpið komi hingað innan fárra vikna, vonandi bara seinna í þessum mánuði. Það er það sem við stefnum að.

Ég er sammála hv. þingmanni um Þingvallanefnd og þær umræður sem þar eru stundum. Ég sat þar allt síðasta kjörtímabil. Það er eitthvað sem við þurfum að gera betur varðandi heildarskipulagið um hvert viljum við fara með Þingvelli og aðra merkilega staði.

Ég segi að það strandi ekki á fjármunum á þessum stöðum þar sem mest er talað um að náttúran liggi undir skemmdum. Fjárveitingunni sem ég var að tala um núna og við lögðum fram í sumar — Þingvellir fengu úthlutað af því mótframlagalaust sem átti að nota strax — hefur ekki verið ráðstafað. Á nokkrum stöðum spurði ég: Hvaða verkefni sem við erum með hér og þið viljið koma í framkvæmd stranda á fjármagni? Það var ekki talað um eitt einasta verkefni sem uppfyllti þessi skilyrði. Ég er að vísu ekki að tala um framtíðaruppbyggingu á Hakinu með þjónustumiðstöð og hóteli eða einhverju slíku, ég er að tala um þá uppbyggingu sem er nauðsynleg núna á meðan við erum að koma þessu í betra horf.

Þar verðum við öll að taka höndum saman. Það er akkúrat markmið mitt með öllu þessu. Gjaldtakan er mér ekkert sérstakt hugðarefni. Ég vil bara koma málum í það horf að við getum haft trygga fjármögnunarleið til að vernda þá dásamlegu vöru sem íslensk náttúra er og að við getum gert það sómasamlega. Það þarf ekki svo mikið. Það þarf skipulag, við þurfum að vanda okkur og koma þessum málum í betra horf.

Ég ítreka þakkir mínar (Forseti hringir.) til hv. þingmanns og hvatningu og mun eiga hana að þegar frumvarpið kemur fram.