144. löggjafarþing — 4. fundur, 12. sept. 2014.
fjárlög 2015.
1. mál
Virðulegi forseti. Ég hafði skilið það sem svo að hæstv. forsætisráðherra væri hér bæði sem hæstv. forsætisráðherra og dómsmálaráðherra, þannig var það kynnt fyrir mér. Ég spyr hæstv. forsætisráðherra: Vill hann ekki upplýsa þingið um þessi mál eða vill hann fremur fá þau síðar í óundirbúnum fyrirspurnum? Því að þetta er væntanlega mál sem hann hefur hug á að kynna fyrir okkur hv. þingmönnum.