verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Virðulegi forseti. Ég trúi, en ég veit eftir að hafa verið opinber persóna í smástund að fjölmiðlar eru brigðulir og þeir eru líka takmarkaðir. Við erum með frekar fáa fjölmiðlamenn á Íslandi vil ég meina, a.m.k. miðað við það sem þarf. Það þarf að fjalla um miklu fleira en raunverulega er fjallað um.
Það kemur fram í greinargerð frumvarpsins að heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna eigi að sjá um eftirlit með þessu og það er rétt að maður heyrir það eftirlit ekki oft gagnrýnt. Mér er hins vegar alls kostar óljóst hvort gagnrýnin ætti að vera meiri á það sem við vitum ekki af. Það er þó á hreinu að hlutverk Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaganna er að sjá um þetta eftirlit.
Mörg sveitarfélög standa mjög illa fjárhagslega. Þess vegna velti ég fyrir mér hvort þingmaðurinn mundi taka undir það að kannski þyrfti í kjölfar þess að þetta frumvarp yrði að lögum að auka fjárveitingar til sveitarfélaganna til þess að þau gætu staðið undir auknu eftirliti með slíku.