144. löggjafarþing — 21. fundur,  20. okt. 2014.

endurskoðun tvísköttunarsamninga.

[15:31]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Herra forseti. Þetta hefur ekki verið til sérstakrar skoðunar í ráðuneytinu. Ég veit ekki hvort það væri rétta leiðin að taka upp til endurskoðunar tvísköttunarsamninga enda eru þeir tvíhliða og ef Íslendingar vilja taka upp slíka samninga eða jafnvel eftir atvikum segja þeim upp hittum við okkur sjálf fyrir.

Meginatriðið er að menn komist ekki með einhverjum brellum hjá því að skila lögmætum sköttum á Íslandi. Mikilvægt er í tilfelli þeirra félaga sem hér eru undir, eins og hjá öllum öðrum lögaðilum og einstaklingum, að við göngum úr skugga um að sköttum sé skilað lögum samkvæmt.