144. löggjafarþing — 21. fundur,  20. okt. 2014.

endurskoðun tvísköttunarsamninga.

[15:33]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Herra forseti. Eins og fram kom hefur þetta ekki verið til sérstakrar skoðunar í ráðuneytinu frekar en önnur sérstök skattamál. Þess vegna ætla ég ekki að ganga út frá neinu ákveðnu hvað það snertir hvernig einstakir kröfuhafar hafa hagað málum sínum en mér líst mun betur á þá hugmynd sem hv. þingmaður opnar á sem er sú að tryggja að skattumhverfið á Íslandi sé ávallt samkeppnishæft við nágrannalöndin.

Ég tel að við höfum almennt af því ávinning að gera tvísköttunarsamninga sem í grunninn eru ætlaðir til þess að forða endurskattlagningu vegna sömu viðskiptanna eða sömu fjármálagerninganna. Ef það eru vísbendingar um að sköttum sé ekki skilað á Íslandi með einhverjum brellum sem væri hægt að koma í veg fyrir, ég tala nú ekki um með einhverjum einföldum hætti, eigum við að grípa slík tækifæri. Ég þakka fyrir ábendinguna hvað það snertir.