144. löggjafarþing — 30. fundur,  11. nóv. 2014.

fjáraukalög 2014.

367. mál
[14:58]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Herra forseti. Við leggjum áherslu á að lækka skuldastöðu ríkisins. Þess vegna var megináhersla lögð á það á yfirstandandi ári að stöðva hallarekstur ríkisins. Skuldahlutföll ríkisins eru batnandi á þessu ári og verða það líka á næsta ári. Hefði átt að nota alla þessa fjármuni til að greiða upp skuldir? Það fer eftir því hvernig menn horfa á hlutina. Ríkisstjórnin lítur þannig á að hún hafi tekið sérstaklega að sér að grípa til markvissra aðgerða í skuldavanda heimilanna og vegna hans og þess vegna er það mál í ákveðnum forgrunni hér. Önnur verkefni eru líka mikilvæg en þeim verður sinnt.

Varðandi Íbúðalánasjóð og fjármálastofnanirnar er verið að ljúka samkomulagi við þær um fyrirkomulag á greiðslum til þeirra vegna þessara aðgerða og það er rétt að það verður að horfa til áhrifanna á Íbúðalánasjóð og gera ráð fyrir þeim í (Forseti hringir.) fjárlagatengdum málum.