144. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[19:19]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég tek undir að við þurfum að sjálfsögðu að ræða þessi mál í þaula. Það sem ég hef stundum velt fyrir mér er hvernig lýðræðið er túlkað hér á Íslandi. Það er skringilegt. Þó að meiri hluti stjórni hér málum er mjög stór hluti landsmanna með fulltrúa á Alþingi og það er mjög erfitt að koma að sjónarmiðum og sýn þess hluta á það hvernig á að forgangsraða í fjárlögum. Telur þingmaðurinn að það sé eðlilegt eða lýðræðislegt hvernig þessum málum er háttað varðandi fjárlagagerð?