144. löggjafarþing — 44. fundur,  9. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[20:32]
Horfa

Róbert Marshall (Bf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mér finnst það mjög athyglisvert sem fram kom hér í andsvari hv. þingmanns hvað varðar það 25 ára aldurstakmark sem nú er verið að setja. Ég held að það sé gríðarlega hollt fyrir einstaklinga á þessu aldursbili, milli tvítugs og þrítugs, kannski frá 18 ára aldri eða 16 ára aldri, að hafa tækifæri til að gera hlé á námi sínu og velta því fyrir sér hvað eigi að taka við. Sá sem hér stendur gerði það, ég var til sjós í nokkur ár og gerði hlé á námi og var svo gæfusamur að hafa í minni heimabyggð í Vestmannaeyjum framhaldsskóla sem hægt var að sækja burt séð frá aldri og ljúka þaðan stúdentsprófi.

Ég held því að þetta sé rétt hjá hv. þingmanni, kannski sérstaklega hvað varðar hinar dreifðari byggðir, þar sem fólk hefur tækifæri til að gera hlé á námi sínu og vinna bara svona almenn verkamannastörf, sjómennsku eða fiskvinnslu eða eitthvað slíkt, og koma síðan aftur.

Ég held því að það sé rétt mat hjá hv. þingmanni að þetta sé andsnúið hagsmunum landsbyggðarinnar. Þar fyrir utan eru 25 ára einstaklingar ekki rosknir einstaklingar, eins og haldið hefur verið fram í opinberri umræðu um þetta mál, heldur er þetta fólk á mjög miklu og misjafnlega miklu mótunarskeiði sinnar ævi og á að fá tóm og tækifæri til þess að meta næstu skref. Ég vildi kannski aðeins heyra skoðanir hv. þingmanns á þessu.