144. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[21:09]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Nú þegar við göngum til atkvæða eftir 3. umr. fjárlagafrumvarpsins vil ég þakka hv. fjárlaganefnd fyrir ágætissamstarf um breytingar á frumvarpinu undir þinglegri meðferð og einnig stjórnarliðum og stjórnarandstæðingum fyrir nokkuð málefnalega umræðu um málið og tengd frumvörp. Við höfum aldrei áður lagt fram fjárlagafrumvarp og tekjuöflunarfrumvörpin jafn snemma og þetta haustið. Það hefur haft sín áhrif á umræðuna. Við höfum tekið dýpri og umfangsmeiri umræðu, kannski sérstaklega um tekjuöflunarhlutann, en við höfum áður haft tækifæri til að gera.

Heildarniðurstaðan er mjög ánægjuleg. Við höfum ríkissjóð með ágætisafgang. Við erum með hallalaus fjárlög. Skuldahlutföll ríkisins fara lækkandi, við bætum í fjárheimildir til mikilvægra stofnana ríkisins, heilbrigðiskerfisins og víðar og léttum undir með heimilunum í landinu.