kosning níu manna og jafnmargra varamanna í stjórn Ríkisútvarpsins, fjölmiðils í almannaþágu, til eins árs, að viðhafðri hlutfallskosningu, skv. 9. gr. laga nr. 23/2013 um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu.
Mér hafa borist tveir listar, annar sem ég merki A og hinn sem ég merki B.
Þar sem forseta hafa borist fleiri nöfn en kjósa skal þarf að fara fram kosning, samanber 82. gr. þingskapa. Kosningin fer þannig fram að þingverðir útbýta seðlum til þingmanna sem skrifa annaðhvort A eða B á seðilinn. Þingverðir munu safna seðlunum saman.
Forseti endurtekur að þeir sem kjósa fulltrúa á A-lista, þ.e. fulltrúa frá Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki, riti A. Þeir sem kjósa fulltrúa á B-lista, þ.e. fulltrúa Samfylkingarinnar, Vinstri grænna, Bjartrar framtíðar og Pírata, riti B á seðilinn.
[Gengið var til kosninga í stjórn Ríkisútvarpsins.]
Niðurstaða kosninganna liggur nú fyrir. A-listi fékk 38 atkvæði, B-listi fékk 25 atkvæði.
Aðalmenn:
Guðlaugur G. Sverrisson (A),
Mörður Árnason (B),
Ingvi Hrafn Óskarsson (A),
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir (A),
Björg Eva Erlendsdóttir (B),
Eiríkur Finnur Greipsson (A),
Friðrik Rafnsson (B),
Kristinn Dagur Gissurarson (A),
Ásthildur Sturludóttir (A),
Varamenn:
Árni Gunnarsson (A),
Árni Gunnarsson (B),
Sjöfn Þórðardóttir (A),
Katrín Sigurjónsdóttir (A),
Hlynur Hallsson (B),
Gabríela Friðriksdóttir (A),
Lilja Nótt Þórarinsdóttir (B),
Þuríður Bernódusdóttir (A),
Jóhanna Pálsdóttir (A).