144. löggjafarþing — 71. fundur,  26. feb. 2015.

Vestnorræna ráðið 2014.

478. mál
[22:36]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf):

Frú forseti. Ég skal gera þá játningu strax í upphafi ræðu minnar að ég er ekki í nokkru skapi til þess að hrósa formanni Vestnorræna ráðsins í dag, en ég vil samt segja að ég tel að Vestnorræna ráðið hafi á síðustu árum þróast með jákvæðum hætti. Ég tel að það sé margt sem ráðið hefur tekið sér fyrir hendur á síðustu árum sem hefur horft mjög til heilla fyrir þjóðirnar allar þrjár. Ég er sömuleiðis alveg sammála því að það beri eftir föngum að efla samstarf þessara þriggja þjóða. Við erum grannþjóðir og við vinnum saman á mörgum sviðum. Ég hef sérstaklega verið þeirrar skoðunar að við þyrftum að hnýta betur ef hægt væri þau bönd sem við höfum við Færeyjar í gegnum Hoyvíkursamninginn. Það er umfangsmesti samningur sem við höfum gert, Íslendingar, þ.e. hann er sá víðfeðmasti á sviði fríverslunar.

Ég er einnig þeirrar skoðunar að gera eigi það sem hægt er til þess að efla líka fríverslun við Grænland. Fyrir því eru margvísleg rök. Íslendingar mundu hafa af því margvíslegan ávinning og sömuleiðis Grænlendingar. Ég er þeirrar skoðunar að frjáls viðskipti á millum þjóða séu kannski besta leiðin til að hnýta sem sterkastar taugar þar á milli.

Þess vegna gæti ég í sjálfu sér farið í töluverða ræðu um það með hvaða hætti mér sýnast þau mál vera að þróast. Mér sýnist að þau séu ekki að þróast neitt sérlega vel. Ég tek eftir því að áherslan í skýrslunni, og að því er virðist af hálfu ráðsins gagnvart þessu, er sú að vilja fá Grænlendinga til að gerast aðilar að Hoyvíkursamningnum. Ég er viss um að hv. þingmaður og formaður ráðsins, sem er hnútum vel kunnug á Grænlandi, er mér áreiðanlega sammála um að á Grænlandi og í grænlenska stjórnkerfinu er ekki nokkur minnsti áhugi fyrir því að reyna að tengjast fríverslunarböndum við okkur Íslendinga og eftir atvikum þjóðirnar tvær, Ísland og Færeyjar, í gegnum Hoyvíkursamninginn. Fyrir því liggja í sjálfu sér ágætisrök. Grænlendingar eru þeirrar skoðunar að það sé kannski fullstór biti að kyngja þegar þeir taka fyrsta skrefið í þá átt, en það hefur legið fyrir um töluverðan tíma. Það lá fyrir á seinni parti síðasta kjörtímabils og það hefur komið fram með ýmsum hætti. Það kom fram til dæmis þegar Aleqa Hammond, sem þá var æðst manna og kvenna á Grænlandi, kom hingað í heimsókn á síðasta ári. Um þetta er einfaldlega rætt á grænlenska þinginu.

Það mætti því velta fyrir sér af hverju áhersla ráðsins er þá á því að gera það með þessum hætti. Ég held að menn komist ekkert áfram með það. Ég tel að það færi formanni Vestnorræna ráðsins miklu betur ef hún mundi hlusta á það sem Grænlendingar segja — sem mér sýnist að hún hafi nú gert, ég ræð það á svipbrigðum hv. þingmanns — og við ættum að vinna í þær áttir.

Ég tel að ef Grænlendingar vilja taka upp tvíhliða fríverslunarsamning við okkur til dæmis, þá eigum við að gera það, við eigum ekkert að rembast við það endilega að ná þeim inn í Hoyvíkursamninginn. Rök þeirra eru alla vega skýr af þeirra hálfu. Þeir vilja fara sér hægt í þessum efnum. Ég tel að Vestnorræna ráðið ætti að skoða það þá hvort með einhverjum hætti væri hægt að greiða fyrir því í staðinn fyrir að bíða eftir að þeir verði aðilar að Hoyvíkursamningnum. Ég held að það verði ekki. En mér finnst mikilvægt fyrir hagsmuni Íslendinga að við festum okkur ekki í því, því að ég tel að við höfum þörf á fríverslunarsamningi við þá.

Að því er varðar þau ummæli sem ég spurði út í, þá er það kannski ekki sérlega réttlátt af mér að spyrja hv. þingmann út í þau, þ.e. ummæli hv. þm. Vigdísar Hauksdóttur, en hún er nú einu sinni formaður Vestnorræna ráðsins og hún ber væntanlega ábyrgð á þessum málum með því að hafa fyrir það framsögu. Það er því fullkomlega eðlilegt að ég spyrji hana hvernig á því standi að höfð eru ummæli eftir íslenskum þingmanni af erlendum fundum þar sem bersýnilega er verið að skreyta sig með, ég segi ekki stolnum fjöðrum en alla vega tilbúnum. Það er á hennar ábyrgð sem þarna situr úti í sal, og einskis annars, að það skuli koma fyrir Alþingi. Ef það er rangt finnst mér með einhverjum hætti eigi það að vera staðfest af þingsins hálfu. Það er svo einfalt mál. Það þýðir ekkert, hvorki fyrir hv. þingmann né einhvern annan, að leggja fyrir þingið skjöl sem ekki standast. Og skjöl sem eru lögð fyrir þingið á ábyrgð formanna viðkomandi ráða eða nefnda hljóta að fara í gegnum einhvers konar síu. Það hlýtur að vera, að minnsta kosti þegar umdeildar staðhæfingar af þessu tagi koma fram, að þá séu þær skoðaðar og það er á ábyrgð hv. þingmanns, einskis annars.

Að því er varðar hina sameiginlegu stefnumótun Vestnorrænu þjóðanna þriggja, sem hv. þingmaður virðist standa fyrir, þá ítreka ég það sem ég sagði áðan að mér finnst það mjög umhendis, svo ekki sé meira sagt, að hv. þingmaður skuli taka sér það fyrir hendur að standa fyrir stefnumótun á mjög mikilvægu sviði, en það er eins og það sé fullkomlega aftengt íslenska þinginu. Hv. þingmaður veit það jafn vel og ég að íslenska þingið hefur samþykkt stefnu í þessum efnum sem er ákaflega skýr sem ríkisstjórn Íslands, ekki ein heldur tvær hafa farið eftir. Ég er sammála því að það sé farsælt fyrir þessar þrjár þjóðir, og þó einkum Ísland og Grænland, að hafa breiðar sameiginlegar línur gagnvart norðurslóðum af ýmsum ástæðum. Það eru kannski minni rök og færri sem liggja fyrir því af Færeyja hálfu, en ég set mig síður en svo upp á móti því. En ég set mig upp á móti því af öllum mínum krafti sem þingmaður á Alþingi Íslendinga, og ég sit í utanríkismálanefnd, að það sé gert án einhvers konar samráðs eða formlegra tengsla við utanríkismálanefnd Alþingis. Ég tel að hvorki formaður Vestnorræna ráðsins né aðrir þingmenn sem þar sitja hafi nokkurt umboð til þess, enn síður þegar fram kemur í framsögu hv. þingmanns að það er greinilega svo illa hugsað að hún veit ekkert hvað á að gera við afraksturinn í framtíðinni. Ekki neitt. Svarið var: Við sjáum bara til hvað úr því kemur. Svo er það sent til utanríkisráðuneytanna! Alltsvo, erum við ekki hér kjörnir fulltrúar fólksins? Er það ekki svo? Erum við að framselja vald okkar til einhverra ráðuneyta? Það er ekki minn skilningur. Ég tel að hv. þingmaður hafi ekkert vald til þess, svo það sé bara algjörlega á tæru hér.

Að öðru leyti, frú forseti, hef ég ekkert frekar um þetta að segja. En þessi tvö atriði valda mér vonbrigðum. Og hið síðara, að því er norðurslóðir varðar, djúpum.