ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.
Virðulegur forseti. Ég er alveg opin fyrir því að enda í einu þrepi ef við mundum á móti á einhvern hátt koma til móts við ýmsar greinar, eins og menningu þar sem við höfum verið að hækka vaskinn, sem er kannski ekki gott skref. Ef við setjum á móti meira fjármagn til að mynda í menningu væri ég alveg hlynnt því að enda í einu þrepi. Það sem mér hefur fundist skorta er að ég sé ekki hvert stjórnvöld stefna varðandi það að enda í einu þrepi. Hvað á þetta þrep að vera? 20% eða 10% eða hvað erum við að tala um? Mér finnst það skipta máli að við sjáum hvert við erum í rauninni að fara.
Jafnvel líka það að vera ekki með neinar undanþágur, vera bara með eitt þrep og svo til þess að leiðrétta það, eins og t.d. matvæli og annað, væri hægt að lækka tolla á innfluttum landbúnaðarafurðum. (Forseti hringir.) Það eru ýmsar leiðir til þess að lækka kostnað á móti.