144. löggjafarþing — 96. fundur,  27. apr. 2015.

ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.

688. mál
[19:33]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Nei, það er engin sátt í slíku samfélagi. Það má sjá kröfuna á vinnumarkaði nú, það er krafan um félagslegt réttlæti. Fólk óttast að verið sé að stefna aftur inn á brautina með vaxandi ójöfnuði þar sem þeir ríkustu graðka til sín en meðaltekjufólk og lágtekjufólk situr eftir með skarðan hlut.

Ég hef áhyggjur af því að um fjórðungur atvinnulausra er háskólamenntað fólk. Ekki eru lagðir nægir fjármunir til nýsköpunar og rannsókna sem er til þess fallið að auka verðmætasköpun í samfélaginu. Í stað þess er einblínt á hina hefðbundnu atvinnuvegi og í raun er ekki verið að fénýta auðlindirnar, t.d. fiskinn sem og ferðamennina sem koma hér til þess að njóta íslenskrar náttúru. (Forseti hringir.) Hvað segir hv. þingmaður um þessa stefnu stjórnvalda?