áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Ég tek undir það, hæstv. umhverfisráðherra er ekki í þingsal lengur, ekki eins og er, sem getur vel verið af lögmætum ástæðum en mig langaði bara að nefna að 14 manns eru á mælendaskrá. Ég er númer 3, hv. 6. þm. Reykv. s. er númer 2 og hv. 8. þm. Norðvest. númer 1. Ég er viss um að allir þessir þrír hv. þingmenn eru reiðubúnir að skipta á sæti við hæstv. umhverfisráðherra vilji hann taka hér til máls, sömuleiðis haga þessu þannig að þeir kæmu þá á eftir eða hvernig sem menn vilja haga þessu.
Ég velti fyrir mér hvort virðulegi forseti geti og vilji beita sér fyrir því að við komum hæstv. umhverfisráðherra fyrir á mælendaskrá í kvöld þannig að við getum haldið þessari umræðu á þeim góðu málefnalegu og efnislegu nótum sem þær hafa verið síðan hún hófst. Ég velti fyrir mér hvort virðulegi forseti sé reiðubúinn að beita sér fyrir þessu. Ég er allur af vilja gerður til að hliðra til mínu sæti á þessari mælendaskrá (Forseti hringir.) í hvora áttina sem er og hvernig sem hentar til að koma hæstv. umhverfisráðherra að.