144. löggjafarþing — 105. fundur, 12. maí 2015.
áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
244. mál
Virðulegur forseti. Ég get ekki orða bundist vegna ræðu hv. þm. Jóns Gunnarssonar hér áðan. Ég vil koma með þá ráðleggingu til hans, af því að hann virðist ekki vera á þeim buxunum að fara að semja einhvern frið í þessu máli, að mæta kannski bara hér í útvíðum buxum og safna í svolítið myndarlega barta þannig lúkkið passi við ræðurnar sem hann er að flytja, þær eru allar frá 1972.