144. löggjafarþing — 107. fundur,  15. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[19:08]
Horfa

Páll Valur Björnsson (Bf) (um fundarstjórn):

Hæstv. forseti. Ég kem hingað upp eina ferðina enn til að lýsa stuðningi við þá í stjórnarandstöðunni sem hafa talað hér um að slíta þessum fundi og reyna að boða til sáttafundar um þetta mál því að ljóst er að þetta er ekki að fara að leysast. Það er í rauninni alveg ótrúlega sorglegt að við þurfum að standa hér í dag fyrir framan alþjóð og vera í þessu karpi, eitthvað sem íslenska þjóðin þarf alls ekki á að halda.

Ég hef verið duglegur við það hér í ræðustól og í ræðu og riti að hvetja ríkisstjórnina til að blása til stóraukins samráðs við alls kyns samtök í samfélaginu til að reyna að koma á friði. Við erum lítið samfélag og við þurfum svo sannarlega á því að halda að halda hér frið og búa til sátt í samfélaginu. Samfélagið logar í kjaradeilum og velferðarkerfið er nánast í molum. Og við erum að eyða heilum dögum í það að ræða um einhverjar rammaáætlunartillögur sem engin þörf er á.