144. löggjafarþing — 111. fundur,  22. maí 2015.

fundur í atvinnuveganefnd og umræða um rammaáætlun.

[14:49]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti tekur fram að hann bindur miklar vonir við þennan fund en að þrátt fyrir hann sé hægt að halda hér áfram efnislegri umræðu. [Ókyrrð í þingsal.] Það er mat forseta. Engu að síður — (Gripið fram í: Samráð við hvern?) Sá fundur sem boðaður hefur verið er meðal annars með verkefnisstjórn eftir því sem forseta er best kunnugt og hann lítur þannig á að hér sé um að ræða alvörufund til að reyna að glöggva sig á þessu máli.