144. löggjafarþing — 111. fundur,  22. maí 2015.

fundur í atvinnuveganefnd og umræða um rammaáætlun.

[15:07]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Vegna orða hv. þingmanns um eldhúsdaginn vill forseti taka fram að það sjónarmið að fresta eldhúsdegi átti sér almennan hljómgrunn, vill forseti fullyrða, meðal forustumanna þingflokkanna og flokkanna. Þeir töldu einfaldlega skynsamlegra að hafa eldhúsdaginn nær væntanlegum þinglokum. Forseta er svo sem alveg kunnugt um að þegar svo hefur háttað til að ekki hefur verið hægt að halda starfsáætlun hafa menn haldið sig við eldhúsdaginn, en mörgum hefur hins vegar þótt það ankannalegt. Forseti telur sig ekki vera að ýkja mat þingflokkanna þegar hann segir að þeim hafi þótt skynsamlegra, heppilegra og eðlilegra að hafa eldhúsdaginn nær væntanlegum þinglokum.