144. löggjafarþing — 116. fundur,  1. júní 2015.

jarðalög.

74. mál
[11:56]
Horfa

Páll Jóhann Pálsson (F):

Virðulegi forseti. Ég fagna þessu frumvarpi. Hér er verið að koma til móts við sveitarfélög í skipulagsmálum á landi sem eru undir fimm hekturum. Jafnframt er verið að tryggja hér aðkomu landbúnaðarráðherra um land sem er gott til landbúnaðarnota, að það verði áfram í landbúnaðarframleiðslu. Jafnframt bind ég vonir við að með þessu frumvarpi skapist grundvöllur til að leysa áralangan ágreining milli bænda og Landgræðslu ríkisins um land sem Landgræðslan hefur tekið að sér að rækta upp og þann ágreining þegar Landgræðslan er að skila því landi til baka.