144. löggjafarþing — 116. fundur,  1. júní 2015.

áætlun um meðferð og ráðstöfun aflamagns sem dregið er frá heildarafla.

775. mál
[23:51]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Það eru eilíf vonbrigði hér í þessum þingstörfum. Núna eina ferðina enn líður að miðnætti og forseti hefur ekki sagt okkur hvað þessi fundur á að halda áfram lengi. Eins og komið hefur fram í máli þingmanna eru nefndarfundir á morgun og meira að segja þannig dagskrá, að mér skilst, að sumir þingmenn eigi að vera á tveim fundum samtímis sem er nú ekki auðvelt. Þetta er allt saman út af því að þingið eins og allt annað sem þessi ólánsríkisstjórn kemur nálægt er bara í tómu rugli, engin dagskrá, engar fyrirætlanir, ekki neitt. Það er náttúrlega alveg ófært að bjóða okkur upp á það eina ferðina enn.