störf þingsins.
Hæstv. forseti. Mig langar að lýsa ánægju minni með aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að greiða fyrir gerð kjarasamninga á almennum markaði, sem kynntar voru síðastliðinn föstudag. Áætlunin gerir m.a. ráð fyrir 2.300 nýjum félagsíbúðum sem ætlað er að tryggja tekjulágum fjölskyldum leiguhúsnæði til lengri tíma. Húsnæðisfrumvarpið gerir ráð fyrir að leiga einstaklinga með lágar tekjur verði ekki hærri en 20–25% af tekjum. Bygging 2.300 íbúða leiðir til aukinnar hagsældar í þjóðfélaginu vegna margfeldisáhrifa hennar þar sem eftirspurn eftir vinnuafli eykst.
Fyrst ég nefni margfeldisáhrif og aukna hagsæld er ljóst að 850 millj. kr. framlag ríkisins til brýnnar uppbyggingar og verndaraðgerða á ferðamannastöðum, sem eru í eigu eða umsjón ríkisins, mun ekki einungis leiða til bættrar aðstöðu á þeim stöðum sem fjármagninu er veitt til, heldur munu þeir sem vinna verkið fá af því góðar tekjur. Þannig verður framkvæmdin okkur öllum til góða.
Ég fagna auk þess breytingum á tekjuskatti úr þremur þrepum í tvö og niðurfellingu tolla á fatnað og skó, en sú aðgerð ætti að leiða til þess að verslun hérlendis aukist þannig að ég horfi bjartsýn til framtíðar. En vissulega skyggir á að enn hefur ekki þokast í viðræðum ríkisins við aðildarfélög BHM og Félags hjúkrunarfræðinga en aðilar eru sestir við samningaborðið og er vonandi að deilan leysist sem fyrst.